Oktober smoktóber .... eg er enn a lifi – og i fullu
fjøri ... buin ad fara heim til islands i 2 sinnum síðan
ég skrifaði seinast, og sit þegar þetta er skrifað í vélinni á leiðinni heim í
3 skiptið!
Já ýmislegt búið að gerast hjá mér síðan ég bloggaði seinast - ekki að ég geri ráð fyrir að það komi neinum á óvart...
November og desember einkenndust af miklum gestagandi.
Disa sys kom i heimsokn i byrjun nov og var gott ad fa sma quality time med sys
– sko skemmtilegasta manneskja i heimi geimi til ad gera ekki neitt með
Svo er heldur ekki leidinlegt ad segja fra tvi ad vid
keyptum fyrstu jolagjafirnar – ekki slæmt framtak ad minu mati að byrja svona
snemma í þetta skiptið – og hef ég ákveðið að taka þessu sem þroskamerki af
minni hálfur
>
>
>Pabbi gamli kom svo i heimsokn i midjum nov. Kallinn
hefur ekki komið til DK i ca 8 ar tannig ad kominn timi a hann.... vid gerdum
ansi mikið skemmtilegt ... forum i Turninn a Købmagergade – ja eg buin ad bua
herna i køben i 1½ og fara framhja tessum turni trilljon milljon og einu sinni en
grunadi sko aldrei ad mar gæti farid tar upp og sed yfir alla køben!! Mer fannst tad ekkert sma gaman – sja Køben
from above – bara plus (tratt fyrir smá þokumistur>!)
Svo forum vid i Carlsberg verksmidjuna – svadalegt
bjorfløskusafn sem teir eru med tarna!! Fengum okkur svo ad sjalfsøgdu øllara i
leidinni
Við fórum líka í mat uppí Lyngby til Ásu og Carsten,
keyptum hellings af jólagjöfum – langflestar held ég bara, tókum því rólega á
kaffihúsum og fleira næs og gott. Við fórum líka á landsleikinn Danmörk – Ísland. Danirnir
unnu reyndar 3-0, en ég er með keninngu.
Sko fyrir einhverjum svaka mörgum árum unnu teir 16-2 eða e-ð álíka, og svo
fyrir einhverjum árum var það 6-0 ... og svo núna 3-0 – sjáiðið ekki framfarirnar???
Mín spá er að næst verður 0-0 jafntefli og svo næst eftir það vinnum vid 3-0!!!
Conclusion: það eru bara 2 leikir í að við vinnum Danmörk í fótbolta>
>
>Mamma og Helga Diljá komu svo í heimsókn í byrjun des
yfir langa helgi. Hún er nú meiri perlan hún litla systir mín >
við
tókum því bara rólega, borðuðum mikið af góðum mat, versluðum jólagjafir, fórum á
jólamarkað og drukkum glögg og borðuðum æbleskiver J Jörri kom svo á sunnudeginum og fórum
við í julefrokost í tivoli, ætludum ad spjalla við jólasveininn en þá var litla
daman bara rosa hrædd við hann þannig að ég sá nú bara um spjallið *tíhí*
Freyja vinkona kom svo í heimsókn 15-18dec. Manni leiðist
notla aldrei í vinkonu heimsókn ... kíktum aðeins út á lífið ... versluðum og hugguðum
okkur æði mikið
/>
/>
>Ég fór svo heim yfir jólin í langt jólafrí. Var heima í
heilar 2 vikur og það hefur bara ekki gerst í ár og öld. Tíminn fór í quality
time með fjölskyldunni, kaffihúsaheimsóknir og vina og vinkonu good times
/>>
Relluhittingurinn var notla á sínum stað og klikkar aldrei.
Fíhildarfélagið hélt fund með Phase 10 móti og lotsa lotsa hlátri
/>
Jólin voru góð og ég ofsalega sátt – þrátt fyrir brjálað
rok á áramótunum. Mér fannst voða gott að vera bara heima og taka því rólega –
sem er nú reyndar kannski ekki mikið að taka því rólega á annarra manna
mælikvarða
/>
> >
Þegar ég kom út aftur tóku svo við breytingar í vinnunni
minni – já ég skipti um deild! Í dag er ég sem sagt titluð Group Sales Agent
(er sko með nafnspjald og læti!) og er hluti af söludeildinni. Það var stokkað
upp í hópadeildinni og í staðinn fyrir að við séum 2 sem sitjum með öll 3
löndin, Noreg, Svíþjóð og Danmörku, og að deildin sé þá hluti af þjónustuverinu/bókanadeildinni,
þá voru hóparnir færðir í söludeildina í hverju landi. Þ.e.a.s. ég ber ábyrgð á
hópnum í DK, önnur frá söludeildinni í NO ber ábyrgð á hópnum þar og svo ein
önnu frá söludeildinni í SE .... þetta þýddi jú smá breytingar hjá mér, m.a.
fluttist ég inn í söludeild og misst þar með útsýnið mitt út á Strikið L ...
kostirnir voru samt líka margir – m.a. að ég get andað rólega í vinnunni og er
ekki að brotna undan álagi
... jújú það koma miklir álagstímar ... en so far
hefur þetta samt ekki verið jafn mikil
geðveiki og var hérna fyrir jól! Ég fékk líka fartölvu sem hefur fengið nafnið
Samúel (skýrður í höfuðið á bangsanum hennar Helgu systur, og eiginlega bara
því mér datt ekkert í hug og þessi elska var búin að vera nafnlaus í næstum 2
mánuði!! ... hins vegar ef þið eruð með góðar tillögur þá eru þær vel þegnar
þar sem að samúel er í raun bara reynslunafn!!) />
> >
Janúar kom og fór ... og það sama má segja um fyrstu
vikurnar í feb ... þetta voru erfiðar vikur og við skulum bara ræða sem minnst
um þær - annað en By Gones!
/>
> >
Ég kom svo heim yfir helgi í febrúar. Hildur, ein af mínum
uppáhalds vinkonum var að útskrifast úr háskólanum með rosa fína gráðu og ég er
bara svoooooo stolt af henni
/>
til lukku Hildur mín ... þú ert alger stjarna *knús* />
> >
við Bjöggan vorum samfó heim á fimmtud.kvöldi og ég var
farin aftur á sunnudags eftirmiðdegi... og hver mínúta var sko nýtt – það get
ég sagt ykkur! />
Náði í músina mína á leikskólann á föstudeginum ... hún
er svo mikið krútt – þegar ég kem eru þau í kaffitímanum og hún lítur upp og
brosir voða glöð – og svo kemur þessi líka heiftarlegi prakkarasvipur á hana og
hún tilkynnir mér sko að hún hafi veirð að sulla *hehe* ... líkist ekkert
systur sinni sko
/>
En úff hvað ég var þreytt þegar ég kom aftur til köben!!
Ég sver það ég var í rúma viku að ná mér aftur og fór ekki í ræktina aftur fyrr
en eftir rúma viku sko! />
> >
En talandi um ræktina þá er ég búin að vera nokkuð dugleg
undanfarið... er komin í e-n nýjan pakka! Er farin að hlaupa alveg 3-4 sinnum í
viku og svo pilates ca 3 í viku og svo Bold og Balance tími ca 1 sinni í viku
... finnst þetta alveg æðisleg blanda J ... er svo komin með nýjan hlaupahring! Já ég er farin að hlaupa í
frederiksberghave og er það algert æði finnst mér ... þar eru líka 2 brekkur –
ein lítil og stutt og ein löng og brött ...
get ekki neitað því að það er voða oft svona nett ”Rocky og tröppurnar”
moment hjá mér þegar að ég er búin að komast alla leið uppá topp *hihi* />
> >
En mér líður annars voða vel bara ... vinnan gengur vel
og þrátt fyrir smá ”leiða” undanfarið finnst mér þetta samt skemmtilegt og ég
er að takast á við ýmislegt nýtt reglulega og er enn að læra alveg hellings... />
> >
Er eins og ég minntist á í vélinni á leiðinni heim yfir
páskana – sem þýðir þá í raun að þetta er kemur inn næst þegar að ég fer á
netið
/>
Ég ætlaði nú ekki að vinna fyrri hlutann af deginum á
morgun og fara svo heim með hádegisvélinni ... en ákvað bara að skella mér í
kvöld (það er sem sagt þri.kvöld nuna!) og vinna bara allan daginn heim á
morgun og taka mér svo bara aukadag í frí heima eftir páska... ég fer sem sagt
ekki út aftur fyrr en á þriðjudaginn í staðinn fyrir á mánudaginn einsog ég var
búin að segja öllum
/>
Þarf alveg á þessu fríi að halda og það verður voða gott
að slaka aðeins á. />
Pabbi, Dísa og Gunnar fara reynar keyrandi vestur á Ísó á
morgun (miðvikudag) þannig að næ rétt smá tíma með þeim í fyrramálið og svo smá
á þriðjudaginn... en ég eyði þá bara meiri tíma með öðrum í staðinn
/>
Það er svo Relluhittingur á lau.kvöldið með tilheyrandi
snakki, hlátri, slúðri, sukki og fyrst og fremst gleði J ohhh get ekki beðið eftir að hitta
píurnar mínar
/>
Svo var nú e-r umræða um Fílhildarhitting og Phase 10 og
hlátur ... öss hvað ég væri nú til í það
/>
Annað kvöld ætla ég svo í Pilates til Birgittu minnar og
hugsanlega dinner ... og svo á föst er dinner hjá elsku sóley minni og Dodda og
Gunnari freyr ... úff hvað það er sko langt síðan ég hef fengið knús frá þeim!! />
> >
Ég er annars bara svona að pæla í sumarfríinu mínu þessa
dagana ... hvenær ég á að taka það, hvað ég ætla að gera og hvert mig langar að
fara! />
Efst á planinu var að fara til Venezuela með Jónsa mínum
í lok maí og byrjun júní. Ég þekki strák sem er frá Venezuela og er þar núna og
fram í miðjan maí og ætluðum við að hitta hann og ferðast aðeins um ... smá
ævintýri ... en þetta virðist reyndar vera að
detta uppfyrir þar sem að Icelandair er ekkert sérlega skemmtilegt eða
næs við hann Jónsa eins og er
/>
Ég fæ reyndar úr því skorið þegar ég hitti hann núna
þegar ég er heima ... en ef e-n langar í 2-3 vikna ævintýraferð í maí til
Venezuela þá endilega látið í ykkur heyra
/>
En ég er að sjálfsögðu með back up plan eins og mér einni
er lagið
/>
Ef ekkert verður úr Vene þá var ég annað hvort að spá í
að fara í 2 vikur í maí til Kuala Lumpur í Malasíu að heimsækja Ragga vin minn
sem býr þar ... eða þá fara til Sikileyjar í nokkra daga að hitta Jeremy vin
minn sem verður í Ítalíu í tæpa 2 mánuði í apríl og maí að vinna að
ferðabókinni sinni, og fara svo kannski þaðan og kíkja á hana Daisy mína í
nokkra daga (á nú reyndar eftir að minnast á það við hana *hehe) og svo þaðan
bara heim í nokkra daga! />
En þetta er enn allt bara uppí hausnum á mér og ekkert
planað eða fastlagt enn .... þannig að ef að e-um langar að gera e-ð
skemmtilegt með mér í sumar (helst maí, byrjun júní eða sept) þá er um að gera
að holla ... ég er t.d. rosa mikið game i Road Trip eða ”lestartrip” í DK og
niður til Evrópu ... ég er alltaf til í
ævintýri ;o) />
> >
Jæja ... ég held að ég láti þetta kannski bara gott heita
... orðinn nógu langur pistill og ef þið eruð enn að lesa þá eitt gott klapp
fyrir ykkur
/>
Spurning hvort ég fari nú ekki að taka mig saman í
andlitinu og blogga aðeins oftar ... nógu mikið af pælingum eru nú í hausnum á
mér
/>
> >
Knús elskurnar mínar – ef þið eruð þarna enn og ekki
alveg búin að afneita mér vegna slæms upplýsingaflæðis – þó bara frá minni hlið
/>
> luv L...
>
> >